Einangrun XPS og PIR eru komin á lager
Vorum að fylla lagerinn af bæði XPS og PIR einangrun. Stærðir frá 30 til 120 mm

Við vorum að klára að tæma nokkra gáma af einangrun, bæði XPS og PIR. Nú er nóg til á lagernum af þeim þykktum sem við bjóðum upp á.
PIR einangrunin er með álþynnu beggja megin og býður upp á ótrúlega mikla og góða einangrun. Við erum fullviss um að við bjóðum upp á ótrúlega hagstæð verð á XPS og PIR einangrun. Heyrðu í sölumönnum okkar og fáðu tilboð í þitt verk.
ATH: Við bjóðum einnig upp á hallandi PIR einangrunarplötur, fáanlegar ef óskað er. Pöntunin þín verður tilbúin og afhent innan þriggja vikna. Hvað þurfum við?
- stærð þaksins (lengd og breidd)
- hæð á þakkant
- niðurföll og fjöldi þeirra
- afhendingar fang
* Þakplön eru innifalin fyrir einangrarplötur !!!
Svo er alltaf heitt á könnunni að Drangahrauni 4 (gengið inn Skútahraunsmegin) og hjá okkur starfa fagmenn í bransanum sem gefa góð ráð um allt sem viðkemur þakinu þínu.



