Ný vara á leiðinni - Polylastic Dúkur í dós

Ný vara á leiðinni, Polylastic, fljótandi vatnsvörn. Við ákváðum að prófa efnið á steyptum svölum. Sjáið útkomu
May 7, 2025
Deila frétt

Við eigum von á stórri sendingu frá Polyglass eftir 2 vikur og í þeirri sendingu eru nokkrar viðbætur við vöruúrvalið hjá okkur. Þar á meðal er vara sem við erum sérstaklega spennt fyrir. Polylastic er einþátta vatmsleysanlegt bikefni, tilbúið til notkunar beint upp úr dósinni. Polylastic er framleitt úr sérstakri blöndu af bikefni, sérhæfðum gerviefnum sem eru með mikla teygjueiginleika og mjög dreifanlegum fylliefnum. Polylastic er með mjög góða viðloðun við marga fleti og gerir þá vatnsþétta.

Prófun á Polylastic á steyptar svalir

Við áttum eina fötu til af Polylastic sem við fengum fyrir nokkru síðan sem prufu. Um páskana gafst kjörið tækifæri til að prófa efnið á steyptar svalir á raðhúsi. Svalirnar voru með bera steypuna og okkur langaði að prófa sjálf hvernig Polylastic kæmi út við þær aðstæður. Páskarnir buðu upp á þokkalegar aðstæður þó ekki þær allra bestu því þrátt fyrir sól og þokkalegar hitatölur yfir daginn þá var næturfrost. Við mælum með að nota Polylastic þegar sólarhringshitastig fer ekki undir 5°C. En hvað um það við prófuðum samt.

Við byrjuðum á því að hreinsa svalirnar vel, losa allt laust, smúla þær og kústa og leyfðum þeim svo að þorna. Morguninn sem fyrsta umferð fór á ryksuguðum við yfir svalirnar til að tryggja að það væri ekkert laust á þeim og svo byrjuðum við að mála efnið á. Við skárum kantana með pensli og svo hreinlega helltum við úr fötunni á svalirnar og dreifðum úr með málningarrúllu.

Tvær umferðir - Seinni umferð sólarhring seinna

Það er hægt að gera þetta í ýmsum útfærslum en fyrir þessa tilraun okkar ákváðum við að gera þetta einfalt og setja bara tvær umferðir af Polylastic og ekkert meir. Það er hægt að styrkja dæmi enn frekar og setja polyester styrkingu á milli laga. Þá er 60-70gr polyester dúkur lagður ofan í blauta fyrstu umferð og dúkurnum þrýst niður með málningarrúllunni. Svo sólarhring seinna er seinni umferðin sett á. Við ákváðum að bíða í sólarhring og svo einfaldlega mála seinni umferðina yfir.

Polylastic er orðið snertiþurrt eftir um það bil 6 klst (fer eftir hitastigi) og mælt er með að bíða með næstu umferð í 24 klst. Þegar fyrri umferð var klár þá sáum við að við vorum frekar sparsöm á efnið og ákváðum að mála þykkara lag í seinni umferðinni. Sama aðferð var notuð, skorið með pensli svo hellt úr fötunni og efnið rúllað á með málningarrúllu.

ÁFERÐIN EFTIR AÐ SEINNI UMFERÐ VAR ÞORNUÐ
SEINNI UMFERÐ KOMIN Á

Undirbúningur, frágangur og meðferð áhalda

Undirbúningurinn hjá okkur hefði mátt vera betri. Í fullkomnum heimi hefðum við átt að fjarlægjamálmkantinn á utanverðum svölunum, mála efninu þar undir og festa svo kantinn aftur á. Við hefðum líka átt að fjarlægja klæðninguna beggja vegna og mála efninu vel upp á veggina, sérstaklega þeim megin sem skilin við næsta hús eru. Svo setja klæðninguna aftur á. Við hefðum líka átt að setja rönd af málningarteipi á vegginn undir stofuglugganum til að koma í veg fyrir slys þegar við rákum rúlluna í vegginn. Við aðstæður eins og þessar þá mælum við með að mála um það bil 15 cm upp á vegginn og fara vel í kverkarnar.

Á milli umferða pössuðum við vel upp á að það kæmist ekki loft að áhöldunum og gengum frá þeim eins og við gerum þegar við málum með venjulegri málningu og klæddum þau í plastpoka. Lokuðum dollunni með efninu vel og hrærðum svo vel upp í því þegar við settum seinni umferðina á. Þegar báðar umferðir voru komnar á þá þvoðum við áhöldin með vatni. Við settum svo plastfilmu yfir fötuna áður en við lokuðum henni til að tryggja betur endingu á efninu sem eftir er í fötunni.

Magn per fermeter

Polylastic kemur til að byrja með eingöngu í 20kg fötum en miðað við vinsældir efnisins sem er ekki einu sinni komið ennþá munum við taka inn 5kg fötur líka. Polyglass mæla með að nota 1,5-2 kg á hvern fermeter, tvær umferðir. Sem þýðir að 20kg fata dugir tvær umferðir á 10-13 fermetra. Svalirnar sem við prófuðum efnið á eru um 10fm og það er ennþá um 1/3 eftir í fötunni.

Myndband sem sýnir verkið

Við tókum myndir og myndbönd á meðan verkinu stóð og settum það saman í stutt kynningarmyndband sem má sjá hér fyrir neðan. Svo er hægt að sjá fleiri myndbönd á vörusíðunni hér: https://www.thakefnasala.is/vorur/polylastic-svart-20l

Litir

Polyglass framleiða samtals 8 mismunandi liti af Polylastic en þar sem efnið er nýtt hér á landi þá ákváðum við að taka bara þrjá liti til að byrja með, svartan, hvítan (reflect white) og gráan. Aðra liti er hægt að sérpanta svo endilega heyrið í okkur með það. Við leysum vandamálin. Aðrir litir eru: brúnn, rauður, blár, annar tónn af hvítum og grænn.

Lokaútkoman og pantanir

Eins og áður segir erum við mjög spennt fyrir þessari nýjung og nú þegar erum við farin að taka niður pantanir á Polylastic sem kemur eftir um 2 vikur. Grái liturinn er að verða uppseldur fyrirfram en hægt er að fá frekari upplýsingar og panta í síma 8504757 eða á stjani@thakefnasala.is

Hér má sjá fyrir og eftir myndir samsettar: