Uppfærð staða á komu Polylastic

Það er staðfest að gámarnir með Polylastic koma til landsins á sunnudaginn og við erum búin að skila af okkur öllum gögnum sem þarf til að tollaafgreiða hratt og örugglega. Við bindum vonir við að fá gámana til okkar snemma í næstu viku (vikunni 26. - 30. maí) og þá verða þeir tæmdir í snarhasti og viðskiptavinir okkar geta þá komið og sótt pantanir sínar á Polylastic.
Okkar óraði ekki fyrir þessum vinsældum og nú þegar er öll fyrsta sending af gráa litnum uppseld og töluvert komið af umfram pöntunum. Enn er nóg til af bæði svarta og hvíta. Við erum búin að leggja inn pöntun á meiru af gráa litnum og við bættum við í þá pöntun 5kg fötum þar sem mikið hefur verið spurt um þann möguleika á smærri einingum.
Næsta sending kemur til landsins um miðjan júní og við hvetjum alla sem vilja tryggja sér Polylastic í gráum lit að senda okkur línu á thakefnasala@thakefnasala.is með ósk um að taka frá fötur þegar næsta sending kemur til landsins.
En það er fleira nýtt að koma í þessari sendingu. Við fáum Silvertek 15 og Silvertek 25 öndunardúk og svo þéttiborða sem nefnast Butylstrip.
Polyglass Butylstrip er þéttiborði sem hefur mjög mikla viðloðun við hina ýmsu fleti. Butylstrip er með álfilmu sem styrkir og veitir vörn gegn öldrun, oxun og veðurfari. Eins og nafnið gefur til kynna er þetta butylþéttiborði sem ætlaður er til að tengja saman og koma í veg fyrir leka. Sem dæmi um notkun þá er Butylstrip notað í kringum þakglugga, til að festa öndunardúk eða til að loka samskeytum á mismunandi efnum.